carlos.annáll.is

AnnállFræðiHeimurSjálfiðTækniUppgjöf
  • Annálar

  • Tenglar

  • Eldri færslur

  • Leit

Uppgjöf

Carlos @ 11.51 27/6 + 7 ath.

Ég ætlaði ekki að nota þetta blogg framar. Eftir að prestsköllunin var kæfð fyrir mér, sá ég engan tilgang til að blogga framar um guðfræðileg mál.

Uppgjafaprestur hefur enga rödd sem hlustandi er á, allavega ekki ef maður áheyrandi er enn embættismaður í kirkjunni sinni og hugsar meir um frama sinn en góðu hófi gegnir.

Kannski er þessvegna lag að stíga upp á sápukassa og láta vaða. Guð veit að nú er nauðsyn.

Ég drippla boltanum. Spaðinn er í hendinni. Ég horfi á andstæðinginn. Horfi niður aftur og drippla. Horfi á netið vinstra megin við mig. Drippla aftur.

Uppgjöf.

María, veik hóra á batavegi?

Carlos @ 13.31 1/3 + 1 ath.

La Pieta de Villeneuve-les-Avignon - Enguerrand Quarton, 1455-1460

La Pieta de Villeneuve-les-Avignon - Enguerrand Quarton, 1455-1460

Ein af verstu syndum kristinnar kirkju í gegnum aldir er að mínu mati meðferð hennar á konum. Þrátt fyrir ágætt upphaf, þar sem Jesús virti vinkonur sínar ekki síður en vini, tók að sér og hjálpaði konum jafnt sem körlum, fór brátt að halla undan fæti. Áfram…

Uppgjöf – brennuvargar

Carlos @ 12.24 19/7

Pétur Björgvin Thorsteinsson skrifar góða grein á vefritinu trú.is. Þar líkir hann meðvirkni við það að leyfa brennuvörgum að hafa sitt í frammi. Hans niðurstaða eins og heillar kynslóðar Þjóðverja (eftir stríð) er að segja á til brennuvarganna áður en þeir brenna húsið ofan af okkur. Spurning hvort kirkjan (eða vígðir þjónar kirkjunnar) hafi bein í nefinu til að forða slíku. Áfram…

Uppgjöf – hliðarspor

Carlos @ 10.04 19/7

- af hverju stígurðu ekki til hliðar á meðan málið er skoðað

- veistu hvað margir embættismenn hafa beðið mig að gera það ekki, þeir segja að ef ég geri það, muni skriða fara af stað.

Áfram…

Vörn í guðlastsmálinu

Carlos @ 08.33 1/7

Íhaldsstjórnin gegn Brynjólfi Bjarnasyni

Formáli

Eins og kunnugt mun vera, hefir framkvæmdarstjórn auðvaldsins, íhaldsstjórnin tekið upp þykkjuna fyrir guðdóm sinn og höfðað mál gegn mér fyrir ummæli í ritdómi um “Bréf til Láru” sem þóttu ekki tilhlýðilega virðuleg. Áfram…

Art of War

Carlos @ 08.35 30/6

Deila og drottna?

Auðvelt er að halda velli ef maður sker andstæðing við trog. Góð forvörn fyrir framtíðarleiðtoga af gamla skólanum er að finna sér andstæðinga af einhverju tagi, einangra þá og kalla þá nöfnum, s.s. svartstakka. Þeir ná að verða e.t.v. 10 – 15% af heildinni og munu aldrei komast til valda (nema e.t.v. í lýðræðissamfélagi?). Þeir síðan finna sér andstæðinga sem ná e.t.v. 10 – 15% af samkundunni sem eru frjálslyndir eða mannréttindasinnar, bera uppi heitu málunum og ryðja þeim braut. Gott er að vera í miðjumoðinu, eða eins og Anna í Birkihlið sagði fyrir mörgum árum:

Þegar einhver nýr kemur í þorpið, bíð ég með að gefa mig fram við hann. Ef talað er illa um hann, hef ég samband. Þá veit ég að eitthvað er spunnið í hann.

Góður stjórnandi lætur fylkingarnar berjast gefur báðum undir fótinn, gefur báðum dúsur en tileyrir hvorugri.

Art of War eftir SunTzu [SunZi] – enskur texti.

Uppgjöf – Ég mun ekki fyrirgefa!

Carlos @ 10.21 29/6 + 9 ath.

… syndga ekki framar
# #
Áfram…

Uppgjöf – WWJD

Carlos @ 15.37 27/6 + 16 ath.

Öxin er þegar lögð að rótum …

lætur höfundur Mattheusarguðspjalls Jóhannes skírara segja við góða, trúaða fólkið þess tíma (Mt. 3). Verðskuldar góða, trúaða fólkið okkar tíma svoleiðis yfirhalningu? Áfram…

Fluttur með 300 færslur

Carlos @ 18.57 1/11

yfir á www.tolvari.net. Annállinn er búinn að vera mér gott bloggheimili, en nú er kominn tími til að einfalda netlíf mitt. Allar gömlu færslurnar eru þarna, sjáum til hve lengi þær fá að vera hér líka. Ég ætla hinsvegar ekki að blogga hér lengu og ekki heldur á moggablogginu, nema þá til þess eins að vísa á einstaka færslur.

Örvari, Árna Svani og öllum hinum hér á annall.is þakka ég samfylgdina og hlýjuna í gegnum árin.

Sacrilege

Carlos @ 09.42 27/9

St. Marcellain og Munster ostar skolað niður með Cherry Coca Cola. Fyrstu viðbrögð Fern við þessu var “Sacrilege” eða Guðlast.

“Grey þykir mér Freyja” var kviðlingur til að æsa upp tilfinningar á Alþingi árið 1000. Misjafnt er það sem fólk kallar goðgá.

« Fyrri færslur  

© carlos.annáll.is · Færslur · Ummæli