Trú og mannréttindi í skóla
Carlos @ 18.44 2/1/08
Setti inn dálitla grein um trúarbragða- og mannréttindafræðslu á Moggabloggið mitt.
« Robot Chicken · Heim · iPhone sem fjarstýring bíls »
Carlos @ 18.44 2/1/08
Setti inn dálitla grein um trúarbragða- og mannréttindafræðslu á Moggabloggið mitt.
url: http://carlos.annall.is/2008-01-02/240/
Fjöldi 2, nýjasta neðst
Carlos @ 2/1/2008 22.10
Takk fyrir athugasemdina, Torfi. Já, ég tók orðið veraldlegt frá Guðmundi og líklega hefði orðið hlutlægt verið réttara í þessu samhengi. Þakka þér ennfremur fyrir að draga inn umræðu Norðmanna um mikilvægi upplifunarþáttarins.
Torfi Stefánsson @ 2/1/2008 21.15
Mér lýst vel á þessa grein þína og er að mestu sammála henni. Þó finnst mér skrítið þetta hugtak “veraldlegt” sem þú virðist fá frá Guðmundi Markússyni og setur fram sem andstæðu hugtaksins trúarlegt.
Mér finnst eðlilegra að nota orðið faglegt, fræðilegt eða hlutlægt yfir kennsluaðferðina en ekki veraldlegt. Er það og nær umræðunni í Norgegi en þar vilja menn miðla þekkingu um átrúnað og lífsskoðanir á “en objektiv måte”. Þetta þýðir eins og þú segir breytingu bæði á námsefni og á námskrá.
Breytingin sem varð á kristindómsfaginu á árunum 1974-76 byggði á þeirri skoðun að ekki væri hægt að kynnast kristninni einungis á sögulegan hátt (þ.e. objektívan) heldur þyrfti einnig að fjalla um hana sem lifandi veruleika. Skírskota skyldi til umhverfis, nútíðar og til þess sem væri ofarlega á baugi þessa stundina. Þetta kallaði á nánari samvinnu skóla og kirkju.
Reyndar er enn tekist á um mikilvægi upplifunarþáttarins eins og umræðan í Noregi sýnir (sjá t.d. http://www.fritanke.no/NYHETER/Bente_Sandvig_om_KRL-endringene_-_Et_nytt_lag_kosmetikk/).
Þessi fullyrðing um að það þurfi að upplifa fyrirbærið innanfrá til að skilja það er þó að mínu mati rökleysa því það myndi þá þýða að öll rannsókn sem byggði á fjarlægð frá viðfangsefninu (distans) væri til einskis (öll hlutlægt rannsókn væri bull). Sá sem stúderaði islam yrði að vera muslimi, sá sem stúderaði kristna guðfræði yrði að vera trúandi kristin(n). Sá sem rannsakaði kommúnisma yrði að vera kommi og eina manneskja sem skildi konur og femínisma fullkomlega væri lesbían!
Þvert á móti verður öll kennsla um lífsskoðanir að vera eins hlutlæg og mögulegt er. Þetta er niðurstaða umræðunnar í Noregi og hlýtur einnig að verða hér.