carlos.annáll.is

AnnállFræðiHeimurSjálfiðTækniUppgjöf

« iPhone sem fjarstýring bíls · Heim · Nokkrir kennarar »

Að búa í skýinu*

Carlos @ 13.03 27/1/08

(getur ekki einhver snarað þessari fyrirsögn yfir á íslensku fyrir mig?)

Ég er eiginlega hissa á Árna að vera ekki búinn að blogga um þessa færslu sjálfur, ég þykist vita að Fraser Speirs er á blogglistanum hans. Í rauninni er þetta stórmerkileg greining hjá Fraser. Við munum ekki bera með okkur öll skjöl heldur geyma það sem ekki er of þungt í vinnslu (eins og óklipptar kvikmyndir og óunnar ljósmyndir) á veflægum diskum. Tölvurnar okkar verða einskonar þunnir biðlarar netþjóna sem geyma allt okkar, og í rauninni þurfum við ekkert nema tiltölulega létta tölvu og lítinn harðan disk.

Við sjáum vísi að þessu í kerfum eins og þessu bloggi, sem krefst einskis hugbúnaðar annan en vafra, eða Google docs, eða Mindmeister, eða Leikjanetið punkur is. Tölvuvinnslan fer fram á miðlaranum, biðlarinn (okkar tölva) leyfir eingöngu innslátt og sýnir það sem við gerum á skjánum. Í rauninni er einskonar iPhone eða lófatölva allt sem þarf – tengja við skjá og lyklaborð og “prestó”. Í raun er þetta ekkert annað en það sem ég sagði hér.

Steven Frank, sem Fraser notaði sem útgangspunkt, segir skýið reyndar “sukka” vegna hægagangs. En hindranir eru nú einu sinni sett til að yfirvinna. Kannski nýja MacBook Air verði til þess að hreinsa upp hægagang skýjafarsins, og það verði næsta “one more thing“.

* Að búa í skýinu = að eiga allt sitt á internetinu.

url: http://carlos.annall.is/2008-01-27/ad-bua-i-skyinu/

Athugasemdir

Fjöldi 6, nýjasta neðst

Ólöf I. Davíðsdóttir @ 27/1/2008 14.52

Hljómar nú eins og skýjaborgir ;-)
Hvað með skýjabú – eins og netþjónabú, býflugnabú, mjólkurbú…

Pétur Björgvin @ 27/1/2008 15.16

Skýjabú er snilld, tær snilld. Ertu búinn að fá þér pláss hjá Carlos-skýjabúinu? Nei, ég er enn hjá Apple!

Carlos @ 27/1/2008 19.29

Ég er ótrúlega sáttur við orðið skýjabú. Það nær hugsuninni alveg. Orðalagið: “Ég á mér skýjabú hjá .mac og á http://www.meistaranemi.net” getur alveg gengið, finnst mér. Hvað finnst Binna og Örvari?

Árni Svanur @ 27/1/2008 20.26

Ég fylgist greinilega ekki nógu vel með, hafði ekkert tekið eftir þessari færslu hjá FS. En hef séð áhugaverðar vangaveltur um þetta hjá Merlin Mann og Charles Miller. Það sem væri spennandi að hafa í skýjamakkanum og öðrum vélum er alvöru sítenging við netið, t.d. 3G tenging sem tekur við þegar Wi-Fi tengingu sleppir.

Carlos @ 28/1/2008 20.05

Þú fylgist alveg nógu vel með, Árni, það er gaman að geta verið aðeins á undan þér, svona einu sinni ;)

Ég lít þetta svipuðum augum og Merlin Mann (hann horfir reyndar aðeins á .mac, ég held að fleiri skýjabú eigi eftir að rísa, eru þegar risin), hef reyndar verið að bíða eftir einhverju svoleiðis síðan ég sótti tíma í tölvudeild HR fyrir 7 árum, og C# var að koma og öll þessi vefforrit. Varðandi alvöru 3G tengingu við netið eða hvað, þá er áhugavert hvað snilarir hjá Google hafa verið að pæla um eðli og framtíð TCP IP samskipta, hér (81 mín. youtube vídeó).

carlos.annáll.is - » Skýjabú ADrive @ 16/3/2008 11.13

[...] Í fyrstu færslu minni um efnið fjallaði ég um hugmyndina að baki internetsins sem risavaxna gagnageymslu og gagnasmiðju. Nú finnst mér ég kominn með efni í framhald að þessum þönkum. Ég byrja með því að setja mér mörk. Til þess að hægt sé að flytja tölvutæk gögn sín á vefinn og vinna þau þar þarf þjónustan sem veitir gögnunum stað til að vera á og leyfir vinnslu þeirra að: [...]


© carlos.annáll.is · Færslur · Ummæli