Sr. Vader (framhald)
Carlos @ 14.12 11/6/08
Nú er ljóst að félagar Vantrú.is stóðu fyrir því að Darth Vader gekk fyrst á undan, síðan á eftir prósessíunni við upphaf prestastefnu. Eins er ljóst að sumum finnst uppátækið barnalegt og óvirðulegt, öðrum finnst þetta bara fyndið.

Prestar landsins hafa nú gullið tækifæri til að nýta sér þetta gaman til góðs, t.d. með því að benda á það að Darth Vader er sú persóna í kvikmyndum sem sökk hvað dýpst og átti hvað glæsilegasta endurkomu – dæmi um frelsun og náð. Prestar landsins hafa einnig tækifæri til að sýna hverskonar húmor þeir búa yfir – t.d. með því að fagna nýjum meðlimi í stéttinni og bjóða honum að taka þátt í vinnu prestastefnu, t.d. í messuskúðanefndinni sem þar starfar í dag.
Hitt er svo hættara við að prestar með biskup í fararbroddi sýni fýlusvipinn sem þeir sýndu einnig Símanum og Jóni Gnarr þegar hinn síðarnefndi brá sér í líki Júdasar í frægri auglýsingu. Fari svo verður það enn ein vísbendingin um ofurdramb kirkjunnar manna þegar kemur að ímynd kirkjunnar.
Myndirnar tók Karl Gunnarsson á Flickr.

Kalli @ 11/6/2008 14.52
Sæll Carlos og þakka þér fyrir að nota myndirnar mínar. Ég vil samt benda þér á að þær eru birtar með Creative Commons leyfi sem felur í sér að við alla notkun á þeim eigi að geta höfundar, mín í þessu tilfelli, og tengja á hann. Skilmálar Flickr krefjast þess líka að þegar myndir sem eru hýstar hjá þeim eru birtar skuli þær tengja til baka á síðu myndarinnar.
Mér þætti vænt um að þú myndir laga þessi atriði.