carlos.annáll.is

AnnállFræðiHeimurSjálfiðTækni

« Skuldir og greiðslur · Heim · Obama morðingi – fréttamenn í vandræðum »

Allt komið fram sem máli skiptir?

Carlos @ 18.41 11/4/09

Ég leyfi mér að efast um að það sé rétt hjá Bjarna Benediktssyni (Allt komið fram sem máli skiptir – mbl.is.), þótt hann sé líkast til ekki rétti maðurinn til að benda á það sem útaf stendur. Hann gæti bent á það að Samfylkingin og hugsanlega Framsóknarflokkurinn þáðu peninga líka. En orðin myndu hljóma ótrúverðug í hanns munni.

Fundinn er blóraböggull og aðrir flokkar njóta skuggans sem hann varpar á umræðuna núna. Ekki að við fáum rétta mynd af því sem gerðist með þessum hætti. Stórfyrirtækin stunduðu það í góðærinu að kaupa sér gott veður. Ekki bara hjá stjórnmálaflokkum heldur miklu mun víðar. Kórar, skólar, líknarfélög nutu fjárframlaga þeirra undanfarin ár. Í hvert sinn sem skuggi féll á Baugsveldið eða Bónus komu velhönnuð PR “stunt” í formi peninga- eða vörugjafa sem Mæðrastyrksnefnd eða annað líknarfélag fékk að dreifa.

Stórfyrirtækin keyptu Ísland. Við seldum þeim viðskiptavild okkar og stuðning. Án þessa innæis verður sérhver iðrun kattarþvottur.

url: http://carlos.annall.is/2009-04-11/allt-komi%c3%b0-fram-sem-mali-skiptir/


© carlos.annáll.is · Færslur · Ummæli